Vegagerðin hefur gefið heimild til eftirtalinna verka, ef veður leyfir:

Fréttir 22.08.2018
Fimmtudaginn 23. ágúst er stefnt á að malbika báðar akreinar á Biskupstungnabraut við Reykholt, byrjað verður á 390m kafla austan við hringtorg hjá Bjarkarbraut, næst verður farið í 510m langan kafla á milli hringtorga við Skólaveg og Bjarkarbraut. Veginum verður lokað, hjáleiðir settar upp og umferð stýrt meðan þörf er á.  Umferð sem kemur að norðanverðu verður send í gegnum Bræðratunguveg yfir á Skeiða- og Hrunamannaveg, vegfarendur sem eiga erindi inn í Reykholt verður þó hleypt í gegn. Viðeigandi merkingar verða settar upp meðan á framkvæmd stendur skv. viðlögðu lokunarplani 8.0.87 og 8.0.88. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 09:00 til kl. 22:00.   Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum. Ábyrgðamaður veghaldara er Hallvarður 699-6450, ábyrgðamaður verktaka er Marel 660-1919. Umsjón merkinga er Ingvi Rafn 660-1921. 8.0.87 Biskupstungnabraut við Reykholt 8.0.88 Biskupstungnabraut við Reykholt