Byggðasafn Árnesinga
Hlutverk Byggðasafns Árnesinga er að safna, skrásetja, varðveita og sýna muni er tengjast sögu Árnessýslu.
Safnið er í eigu Héraðsnefndar Árnesinga sem er byggðasamlag átta sveitarfélaga í Árnessýslu.
Grunnsýning safnsins hefur verið í Húsinu á Eyrarbakka frá árinu 1995.
Húsið á Eyrarbakka
Andlit safnsins er Húsið á Eyrarbakka, sem byggt var árið 1765 fyrir danska einokunarkaupmenn er í hópi elstu bygginga landsins og lengi vel merkt menningarsetur þar sem erlendra áhrifa gætti á margvíslegan hátt.
Byggðasafn Árnesinga
Húsið á Eyrarbakka og Sjóminjasafnið
820 Eyrarbakki
Heimasíða: Byggðasafn Árnesinga.