Malbikunuarframkvæmdir 23.-24. júní

Fréttir 21.06.2021
Vegagerðin hefur gefið heimild til eftirtalinna verka ef veður leyfir:   Miðvikudagskvöldið 23.júní og aðfaranótt fimmtudags 24.júní er stefnt á að malbika kafla á Þingvallavegi á milli Vinaskógar og Skálabrekkuvegar. Kaflinn er um 1.120m og verður Þinvallavegi lokað meðan á framkvæmdum stendur. Viðeigandi merkingar og hjáleiðir verða settar upp skv. viðhengdu lokunarplani 8.0.80. Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 20:00 til kl. 06:00. Miðvikudagskvöldið 23.júní og aðfaranótt fimmtudags 24.júní er einnig er stefnt að því að fræsa og malbika vinstri akrein á Kringlumýrarbraut til suðurs. Kaflinn er um 840m og byrjar til stuttu eftir gatnamót við Hamrahlíð. Akreininni ásamt vinstri beygjuakreinum af Listabraut verður lokað á meðan framkvæmd stendur. Hámarkshraði verður lækkaður framhjá framkvæmdasvæði. Viðeigandi merkingar og hjáleiðir verða settar upp skv. viðhengdu lokunarplani 8.0.09. Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 20:00 til kl. 05:00. Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum. Ábyrgðarmaður veghaldara er Hallvarður 699-6450, ábyrgðarmaður verktaka er Stefán 660-1922. 8.0.80 Þingvallavegur 36-06, Kaldadalsvegur (550-01) - Grafningsvegur (360-03) (1) 8.0.09 Hafnarfjarðarvegur 40-01, Nesbraut (49-04) - Fossvogslækur