Malbikunarframkvæmdir 10-11. ágúst

Fréttir 09.08.2021

Vegagerðin hefur gefið heimild til eftirtalinna verka ef veður leyfir:

 

Þriðjudaginn 10. ágúst og miðvikudaginn 11. ágúst er stefnt á malbika Biskupstungnabraut. Veginum verður alveg lokað á milli Suðurlandsvegar og Þingvallavegar, hjáleiðir verða um Suðurlandsveg, Skeiðaveg, Skálholtsveg og Biskupstungnabraut. Viðeigandi merkingar verða settar upp skv. viðhengdu lokunarplani 8.0.79

Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 09:00 á þriðjudag til kl. 17:00 á miðvikudag.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.

Ábyrgðarmaður veghaldara er Hallvarður 699-6450, ábyrgðarmaður verktaka er Elías 660-1927.   Smellið á slóðina hér fyrir neðan til að nálgast nánarið upplýsingar 8.0.79 Biskupstungnabraut, Hringvegur (1-d6) - ..sveitarfélagsmörk..