Malbikun á Biskupstungnabraut 26. - 27. ágúst

Fréttir 25.08.2020
Vegagerðin hefur gefið heimild til eftirtalinna verka ef veður leyfir: Frá kl 04:00 aðfaranótt miðvikudags 26. ágúst til kl. 01:00 aðfaranótt fimmtudags 27. ágúst er stefnt á að malbika Biskupstungnabraut(35) á milli gatnamóta við Hringveg(1) og Þingvallavegar(36). Biskupstungnabraut verður lokuð og verður hjáleið um Skálholtsveg(31) og Skeiða- og Hrunamannaveg(30). Vegfarendur frá Höfuðborgarsvæðinu sem eiga leið í Grímsnes og Grafning er bent á hjáleið um Þingvelli(36). Viðeigandi merkingar og hjáleiðir verða settar upp skv. Viðhengdu lokunarplani 8.0.93. Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 04:00 aðfaranótt miðvikudags 26. ágúst til kl. 01:00 aðfaranótt fimmtudags 27. ágúst. Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum. Ábyrgðarmaður veghaldara er Hallvarður 699-6450, ábyrgðarmaður verktaka er Elías 660-1927.   Smellið á slóðina hér fyrir neðan til að nálgast nánari upplýsingar 8.0.93 Biskupstungnabraut-Hringvegur - sveitarfélagsmörk