Sveitarstjórn Bláskógabyggðar
Dagskrá
Oddviti setti fund í Aratungu, um er að ræða aukafund sveitarstjórnar. Aðrir fundarmenn taka þátt í fundinum í gegnum fjarfundarkerfi (Teams). Oddviti kallaði eftir athugasemdum við fundarboð og fundargögn. Engar athugasemdir voru gerðar.
1.Snjómokstur í þéttbýli útboð 2022
2208034
Tilboð í snjómokstur í þéttbýli í Bláskógabyggð. Áður á dagskrá á 312. og 313. fundi.
Í ágúst sl auglýsti Bláskógabyggð útboð á snjómokstri í þéttbýliskjörnum sveitarfélagsins, Laugarási, Laugarvatni og Reykholti. Nokkur tilboð bárust og hafa þau verið yfirfarin. Kallað hefur verið eftir þeim gögnum sem áskilið var í útboðsgögnum að bjóðendur legðu fram. Gögnin hafa verið yfirfarin og liggur frammi minnisblað Lögmanna Suðurlandi, dags. 6. október, þar sem fram kemur álit á því hvort að bjóðendur í útboðinu uppfylli skilyrði útboðsgagna til þess að vera hæfir til að taka að sér verkið. Einnig er lagt fram skuldleysisvottorð og verðmat fasteignar, til samræmis við ábendingar í minnisblaðinu. Í minnisblaðinu kemur fram að til þess að bjóðendur geti komið til álita sem viðsemjendur sveitarfélagsins um verkið þurfi allar hæfiskröfur að vera uppfylltar. Samkvæmt útboðsgögnunum þá ber sveitarfélaginu að ganga til samninga við þann bjóðanda sem á lægsta tilboð í hvern þéttbýliskjarna fyrir sig, að því tilskildu að hann uppfylli hæfiskröfur í kafla 11 í útboðsgögnum. Eftirfarandi tilboð bárust:
Laugarás:
Félagsbúið Hrosshaga. Fjárhæð skv. tilboðsblaði kr. 31.500.
Laugarvatn:
ÓA vinnuvélar ehf. Fjárhæð skv. tilboðsblaði kr. 24.845.
Sveitadurgur ehf. Fjárhæð skv. tilboðsblaði kr. 25.200.
Ketilbjörn ehf. Fjárhæð skv. tilboðsblaði kr. 25.806.
Reykholt:
Kjartan Jóhannsson. Fjárhæð skv. tilboðsblaði kr. 24.900.

JH Vinnuvélar. Fjárhæð skv. tilboðsblaði kr. 27.300.
Hvað varðar tilboð í snjómokstur- og hálkueyðingu í Laugarási uppfyllir lægstbjóðandi hæfiskröfur útboðsgagna. Sveitarstjórn samþykkir að taka tilboði Félagsbúsins Hrosshaga í snjómokstur í þéttbýlinu í Laugarási.
Hvað varðar tilboð í snjómokstur- og hálkueyðingu á Laugarvatni uppfyllir sá bjóðandi sem átti lægsta gilda tilboð í verkið hæfiskröfur útboðsgagna. Sveitarstjórn samþykkir að taka tilboði Sveitadurgs ehf í snjómokstur í þéttbýlinu á Laugarvatni.
Hvað varðar tilboð í snjómokstur- og hálkueyðingu í Reykholti uppfyllir lægstbjóðandi hæfiskröfur útboðsgagna. Sveitarstjórn samþykkir að taka tilboði Kjartans Jóhannssonar í snjómokstur í þéttbýlinu í Reykholti.
Sviðsstjóra framkvæmda- og veitusviðs er falið að tilkynna bjóðendum niðurstöðuna, leiðbeina þeim um biðtíma, frest til að óska eftir rökstuðningi, svo og um kærufrest og kæruleiðir.

Fundargerð var send fundarmönnum í tölvupósti og staðfest með tölvupóstum fundarmanna til fundarritara. Tölvupóstarnir eru vistaðir með fundargerðinni í málaskrá.
Fundi slitið.