Framkvæmda- og veitunefnd

20. fundur 19. ágúst 2021 kl. 11:34 - 11:34
         
  1. fundur framkvæmda- og veitunefndar haldinn í Aratungu, Reykholti, 12 ágúst 2021, kl. 10:00.
    Fundinn sátu: Valgerður Sævarsdóttir, Helgi Kjartansson, Axel Sæland, Ásta Stefánsdóttir, Benedikt Skúlason og Kristófer Arnfjörð Tómasson.       Fundargerð ritaði: Ásta Stefánsdóttir, sveitarstjóri.    
1. Hönnun fráveitu Laugarvatni - 2006019
Bárður Árnason, Sigrún Soffía Sævarsdóttir og Páll Bjarnason frá Eflu verkfræðistofu komu inn á fundinn vegna fráveitumála á Laugarvatni. Farið var yfir tillögu að endurnýjun veitunnar og rætt um framhald verksins.
2. Tungurimi fráveita og gatnagerð - 2106013
Bárður Árnason, Sigrún Soffía Sævarsdóttir og Páll Bjarnason frá Eflu, verkfræðistofu, komu inn á fundinn. Farið var yfir hönnun fráveitu frá Tungurima og tengdum götum og rætt um lausnir.
3. Heimlögn vatnsveitu - 2105004
Umsókn Snorra Geirs Guðjónssonar, dags. 200464-4279, um heimlögn vatnsveitu að Tjörn, nánar tiltekið að 14 sumarhúsum, þremur íbúðarhúsum og fjárhúsi í gegnum eina tengingu. Áður á dagskrá á 17. fundi. Snorri Geir og Guðný Rósa komu inn á fundinn. Rætt var um tengingu við vatnsveitu sveitarfélagsins. Framkvæmda- og veitunefnd felur sviðsstjóra, sveitarstjóra og veitustjóra að gera tillögu að samkomulagi um tengingu við Bláskógaveitu.
4. Heimlögn vatnsveitu - 2106047
Umsókn Gylfa Gíslasonar, kt. 131262-3379, dags. 28. júní 2021, um heimlögn vatnsveitu vegna Kjarnholts II (192978 mhl 02). Framkvæmda- og veitunefnd samþykkir umsóknina miðað við 32 mm lögn.
5. Heimlögn vatnsveitu - 2106044
Umsókn Egils Geirssonar, kt. 051069-4399, dags. 1. júní 2021, um heimlögn vatnsveitu að Stakksárhlíð 8 (217511). Framkvæmda- og veitunefnd frestar afgreiðslu til frekari gagnaöflunar.
6. Heimlögn vatnsveitu - 2106043
Umsókn Bogeyjar Geirsdóttur, kt. 100564-5569, dags. 1. júní 2021, um heimlögn vatnsveitu að Stakksárhlíð 6 (217509). Framkvæmda- og veitunefnd frestar afgreiðslu til frekari gagnaöflunar.
7. Heimlögn vatnsveitu - 2106042
Umsókn Stefaníu Geirsdóttur, kt. 231162-36498, dags. 11. júní 2021, um heimlögn vatnsveitu að Stakksárhlíð 4 (217567). Framkvæmda- og veitunefnd frestar afgreiðslu til frekari gagnaöflunar.
8. Heimlögn vatnsveitu - 2106040
Umsókn Þórdísar Geirsdóttur, kt. 010261- 3419, dags. 11. júní 2021, um heimlögn vatnsveitu að Stakksárhlíð 2 (217505). Framkvæmda- og veitunefnd frestar afgreiðslu til frekari gagnaöflunar.
9. Viðhald grunnskóla 2021 - 2106015
Málningarvinna við grunnskóla sveitarfélagsins. Vinna stendur yfir við málun grunnskólans í Reykholti, sveitarstjórn hafði ráðgert að láta einnig mála Öspina á Laugarvatni, en eftir nánari skoðun á húsinu er lagt til að málun á Öspinni fylgi öðrum viðgerðum á ytra byrði hússins og verði vísað til fjárhagsáætlunargerðar.
10. Samningur um viðhald og þjónustu við ljósleiðara - 2108009
Tillaga um að gerður verði þjónustusamningur um viðhald og aðra þjónustu vegna ljósleiðarakerfis. Sveitarstjóra er falið að leggja drög að þjónustusamningi fyrir næsta fund.
11. Styrkur til fráveituframkvæmda Reykholt - 2108007
Tilkynning Umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, dags. 9. júlí 2021, um styrk til fráveituframkvæmda í Reykholti 2020 og 2021. Kynnt var niðurstaða um styrkveitingu til fráveituframkvæmda í Reykholti.
12. Grenndargámasvæði í Bláskógabyggð - 2104042
Tilkynning Uumhvefis- og auðlindaráðuneytisins, dags. 8. júlí 2021, um styrkveitingu til verkefnisins Grenndarstöðvar við frístundabyggðir í Bláskógabyggð. Kynnt var niðurstaða um styrkveitingu til uppsetningar grenndarstöðva við frístundabyggðir í Bláskógabyggð.
13. Niðurstaða fráveitusýnatöku 2021 - 2108006
Tilkynning Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, dags. 15. júlí 2021 um niðurstöður fráveitusýnatöku í júlí 2021. Niðurstöður voru lagðar fram til kynningar.
14. Niðurstöður neyslu- og baðvatnssýnatöku - 2105029
Tilkynningar Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, dags. 15. og 26. júlí um niðurstöður baðvatnssýnatöku í júlí 2021. Niðurstöður voru lagðar fram til kynningar.
      Fundi slitið kl. 11:50.            
Er eitthvað á síðunni sem betur má fara?