Framkvæmda- og veitunefnd

52. fundur 07. desember 2012 kl. 09:37 - 09:37
52. fundur stjórnar  Bláskógaveitu, 19. Nóvember 2012 kl. 13:00 Mættir:  Jóhannes Sveinbjörnsson, Kjartan Lárusson og Þórarinn Þorfinnsson, stjórnarmenn Bláskógaveitu, Valtýr Valtýsson sveitarstjóri, Benedikt Skúlason veitustjóri og Andrés Bjarnason 1  Viðræður við fulltrúa frá Brúarveitunni vegna gjaldskrár ofl.  Mættir voru Kjartan Sveinsson, Kristinn Antonsson og Bragi Þorsteinsson.  Kynnt var hvernig gjaldskrá hitaveitunnar er og hvernig gjaldskrá hitaveitunnar mun verða ef rukkað er eftir rennslismæli.  Þeir ætla að kynna þetta fyrir sínu fólki og ákveðið að hittast aftur mánudaginn 3 des kl. 13.00. Bláskógaveita áformar að breyta gjaldskrá hitaveitunnar úr hemlagjaldi í mælagjald til samræmis við garðyrkjustöðvar í Reykholti.  Jafnframt áformar Bláskógaveita að yfirtaka rekstur dælu sem staðsett er við Dalbraut í Reykholti í tengslum við þessar gjaldskrárbreytingar. 2  Afgreiðsla á gjaldskrárbreytingum :  Ákvörðun um gjaldskrá er frestað til næsta fundar mánudaginn 3 desember. 3  Afgreiðsla á fjárhagsáætlun 2013: farið yfir drög að fjárhagsáætlun fyrir árið 2013. Samkvæmt áætluninni  verða tekjur kr. 64.605.000, rekstrargjöld með afskriftum kr. 46.576.000, fjármagnsgjöld kr. 4.677.000, rekstrarniðurstaða kr. 13.351.000.  Rými til fjárfestingar innan reksturs veitunnar er 10 til 15 milljónir.  Veitustjórn vísar umræðu um rými til fjárfestingar og hugsanlega lántöku til sveitarstjórnar. 4  Vörðuhlíðarmál:  Jóhannesi, Benedikt, Andrés og Valtý falið að vinna málið áfram fyrir næsta fund. 5  Framkvæmdir/viðhaldsverkefni í gangi og framundan - Benni.  Tengt heitt vatn í Laugarási og kalt vatn í Hrosshaga,  rennslismælir settur í dæluhús í Vörðuhlíð, unnið í tengingum á heitu vatni á Helgastöðum og Eiríksbakka  ofl.  6  Önnur mál :  Benedikt kynnti kostnaðaráætlun Verkfræðistofu Suðurlands ehf vegna endurnýjunar á vatns- og hitaveitu í frístundabyggðum í landi Reykjavalla. Fundi slitið kl 16:30 
Er eitthvað á síðunni sem betur má fara?