Framkvæmda- og veitunefnd

51. fundur 09. nóvember 2012 kl. 09:36 - 09:36
51. fundur stjórnar  Bláskógaveitu, 15. Október 2012 kl. 12:30 Mættir:  Jóhannes Sveinbjörnsson, Kjartan Lárusson og Þórarinn Þorfinnsson, stjórnarmenn Bláskógaveitu, Valtýr Valtýsson sveitarstjóri, Benedikt Skúlason veitustjóri og Andrés Bjarnason 1  Viðræður við fulltrúa Tjarnarveitu vegna óskar þeirra um samstarf við Bláskógaveitu. Mættir frá Tjarnarveitu eru Bragi Finnbogason, Snorri  Guðjónsson og Gunnar Guðjónsson. Þeir kynntu  hugmyndir sínar um sölu á veitunni eða samstarf við Bláskógaveitu um rekstur á veitunni.  Þeir ætla að senda frekari gögn um veituna til þess að hægt sé að taka ákvörðun um framhaldið. 2  Starfsmannamál. Farið yfir starfsmannamál hjá veitunni.  Ákveðið að framlengja ráðningu við Andrés til  1 April.  Jóhannesi falið að ræða við aðra umsækjendur. 3  Benedikt: Framkvæmdir/viðhaldsverkefni sumarsins og framundan: Endurnýjuð lögn að Helgastöðum , lagt í sumarhús að Felli , 2 sumarhús í Giljareitum, lagfærð hitaveita í Laugarási,  sett ídráttarrör við hringtorg og og færður til brunahani. Dæluhús voru máluð.  Settur mælir í dæluhúsið í Vörðuhlíð.  Skipta þarf um einingar á hvernum á Laugarvatni.  Þarf að setja upp dæluhús við Tjarnarafleggjarnn.  Laga þarf heitavatnsdælu í Reykholti. 4  Andrés: Sagði frá ýmsum verkefnum sem unnið hefur verið að: Búið er að útbúa merki fyrir Bláskógaveitu, hefur unnið í að safna gögnum fyir innra eftirlit.  Andrés gerði grein fyrir samskiptum sínum við viðskiptavini veitunnar. 5  Brúarveita : Ákveðið að boða stjórn Brúarveitunnar á næsta fund veitustjórnar . 6  Gjaldskrárbreytingar: Umræða varð um gjaldskrá veitunnar, ákveðið að fresta endanlegri afgreiðslu til næsta fundar. 7  Staða mála varðandi undirbúning að byggingu dæluhúss í Reykholti:  Von er á hönnuði í vikunni og í framhaldi af því þarf að fara í að ljúka áætlanagerð. 8  Reykjavellir: Fyrir liggja umsóknir frá 35 sumarhúsaeigendum á Reykjavöllum  um tengingu við heita- og kaldavatnsveitu Bláskógabyggðar.    Ákveðið að fara í forhönnun á svæðinu til að kanna rekstrargrundvöll á þessari framkvæmd. 9  Vatnsból í Haukadal : Þarf að laga loftunartank við vatnsból .  Benedikt falið  að kanna hvað það kostar að lyfta tanknum og hvernig er best að framkvæma það. Fundi slitið kl 17:00 
Er eitthvað á síðunni sem betur má fara?