Skólanefnd

23. fundur 08. febrúar 2013 kl. 09:02 - 09:02
23. fundur fræðslunefndar Bláskógabyggðar Miðvikudagur 23.janúar 2013 Reykholt Leikskólahluti (16:00 ? 17:10) Mætt: Bryndís Böðvarsdóttir formaður (BB), Axel Sæland ritari (AS), Valgerður Sævarsdóttir varaformarður (VS), Júlíana Tyrfingsdóttir leikskólastjóri Álfaborg (JT), Hrund Harðardóttir skólastjóri Bláskógaskóla (HH), Agnes Magnúsdóttir fulltrúi starfsmanna Álfaborgar (AM), Sólveig Björg Aðalsteinsdóttir fulltrúi starfsmanna leikskólahluta Bláskógaskóla (SBA). Forfallaðir: Ragnhildur Sævarsdóttir fulltrúi foreldra leikskólahluta Bláskógaskóla, (RS), Guðrún Erna Þórisdóttir fulltrúi foreldra Álfaborg (GEÞ) 1.  Nýtt nafn á sameinuðum leik-og grunnskóla. Bláskógaskóli varð fyrir valinu og Hrund er að vinna í því að koma nýja nafninu inn í stjórnsýslukerfið. 2.  Starfsáætlun leikskólahluta Bláskógaskóla. Er tilbúin og komin út.  3.  Starfsmannabreytingar á leikskóla v/fæðingarorlofs. Einn starfsmaður á Laugarvatni fer í fæðingarorlof í mars og umsóknarfrestur um stöðuna rann út í dag, 23.jan. Farið verður yfir umsóknir á næstu dögum.  4.  Önnur mál. a)  Samstarfsverkefni mennta- og menningarmálaráðuneytis, sveitarfélaga og KÍ um innleiðingu nýrra aðalnámskráa. Júlíana bendir á að í boði sé að senda starfsmenn á símenntunarnámskeið þar sem kjarni námskeiðsins er að efla leiðtoga í heimabyggð sem leitt geta breytingarstarf og skólanámskrárvinnu. Mjög þarft verkefni að mati fræðslunefndar og ánægja með framtakið. b)  Hrund hefur efasemdir um að Bláskógaskóli sé að fá þá þjónustu sem hann á rétt á frá skólaskrifstofu Suðurlands í sambandi við sérfræðiþjónustu. Fræðslunefnd hvetur Hrund til að hafa samband við skrifstofu sveitarfélagsins og fá upplýsingar um hvað sé verið að borga til Skólaskrifstofu Suðurlands og hvað skólinn á rétt á mikilli þjónustu. Grunnkólahluti (17:10 ? 18:20) Mætt: Bryndís Böðvarsdóttir formaður (BB), Axel Sæland ritari (AS), Valgerður Sævarsdóttir varaformarður (VS), Hrund Harðardóttir skólastjóri (HH), Sigurlaug Jónsdóttir fulltrúi kennara (SJ), Guðný Tómasdóttir áheyrnarfulltrúi Grímsnes- og Grafningshrepps (GT). Forfallaðir: Elisabet Dröfn Erlingsdóttir fulltrúi foreldra (EDE). 1.  Nýtt nafn á sameinuðum leik-og grunnskóla. Bláskógaskóli varð fyrir valinu og Hrund er að vinna í því að koma nýja nafninu inn í stjórnsýslukerfið. 2.  Skólanámskrá. Skólanámskráin er klár og Hrund setti fram til kynningar. http://blaskoli.blaskogabyggd.is/Skolinn/Skolanamskra/ 3.  Starfsáætlun. Starfsáætlun er klár og Hrund setti fram til kynningar. http://blaskoli.blaskogabyggd.is/Skolinn/Starfsaaetun/ 4.  Skólastarfið. Sameiginlegur starfsdagur var haldinn 2. janúar þar sem allir starfsmenn Bláskógaskóla hittust á Laugarvatni og var um hópefli að ræða þar sem ráðgjafi var fenginn á staðinn til að halda uppi dagskránni. Almenn ánægja var með daginn. Upplestarkeppnin er framundan. Aðeins hefur fækkað í skólanum eftir áramót en 1 barn flutti í burtu og 2 eru farin í Fjölbrautarskóla Suðurlands. Í lok febrúar verður fundur valgreina kennara á Suðurlandi hér í Bláskógaskóla þar sem tilgangurinn er að hittast og deila þekkingu.  5.  Námsráðgjafi fyrir grunnskólana í uppsveitum Árnessýslu. Hrund vekur athygli á málinu þar sem þetta var rætt á síðasta skólaári og ekkert var gert. Fræðslunefnd hvetur sveitarstjórn til að skoða málið nánar þ.e. hvort það sé vilji hjá hinum sveitarfélögunum að vera með sameiginlegan námsráðgjafa fyrir uppsveitirnar. 6.  Bréf Mennta- og menningarmálaráðuneytis. Athugasemd barst frá ráðuneytinu v/fjölda kennsludaga hjá yngstu bekkjum skólans í Reykholti. Hrund sendi bréf til Mennta- og menningarmálaráðuneytis þar sem hún gerir grein fyrir ástæðu þess, sjá fylgiskjal. 7.  Önnur mál. Endurmenntun kennara tekin til umræðu. Axel Sæland ritaði fundargerð
Er eitthvað á síðunni sem betur má fara?