Skólanefnd

21. fundur 09. nóvember 2012 kl. 08:58 - 08:58
21. fundur fræðslunefndar Bláskógabyggðar Miðvikudagur 24. okt. 2012 Laugarvatn Mætt: Bryndís Böðvarsdóttir formaður (BB), Axel Sæland ritari (AS), Valgerður Sævarsdóttir varaformarður (VS), Hrund Harðardóttir skólastjóri (HH), Ragnhildur Sævarsdóttir fulltrúi foreldra leikskóladeildar grunnskólans (RS), Sólveig Björg Aðalsteinsdóttir fulltrúi starfsmanna leikskóladeildar grunnskólans (SBA). Forföll: Júlíana Tyrfingsdóttir leikskólastjóri Álfaborg (JT), Agnes Magnúsdóttir fulltrúi starfsmanna Álfaborgar (AM). Leikskóla hluti (16:00 ? 16:50) 1.  Starfsáætlun 2012-2013 leikskólans á Laugarvatni. Er enn í vinnslu, en allir starfsmenn eru búnir að fá uppkast og skila af sér athugasemdum. Eftir að fullklára hana og setja hana fram á næsta starfsmannafundi. 2.  Samruni leik- og grunnskóla. Stýrihópurinn fundaði þriðjudaginn 2.október. HH segir frá því að farið var yfir þær athugasemdir sem bárust frá leikskóladeildinni og unnið með þær. Nokkrir hnökrar hafa komið upp eins og búast má við í samruna skólanna og unnið er í þeim um leið og hægt er. Betri samhugur er innan hópsins og aðilar farnir að vinna betur saman. SBA er sammála HH um að hlutirnir séu farnir að ganga betur en þó séu nokkur atriði sem þurfi að ganga betur. 3.  Önnur mál. a)  Sameining foreldrafélaga grunnskólans og leikskóladeildar. Nokkur umræða átti sér stað og ákveðið að HH fundi með aðilum beggja félaga og kanni áhuga á að sameina þessi tvö félög. Grunnskóla hluti (17:00 ? 18:00) Mætt: Bryndís Böðvarsdóttir formaður (BB), Axel Sæland ritari (AS), Valgerður Sævarsdóttir varaformarður (VS), Hrund Harðardóttir skólastjóri (HH), Sigurlaug Jónsdóttir fulltrúi kennara (SJ), Guðný Tómasdóttir áheyrnarfulltrúi frá Grímsnes- og Grafningshreppi (GT), Elisabet Dröfn Erlingsdóttir fulltrúi foreldra (EDE). 1.  Ný skólanámskrá og starfsáætlun til kynningar. HH lagði þær fram og kynnti, vinnan við þær er á lokastigi. Skólanámskráin mun svo koma inn á heimasíðu skólans og hugmynd er um að senda öllum foreldrum almenna hlutann og síðan námskrá bekkja sem börnin þeirra eru í. 2.  Innra mat ? Áætlun. HH sagði frá þeirri vinnu sem búin er að vera í gangi.Stefnt er að því að kanna líðan nemanda og starfsfólks innan skólans í vetur. Næsta skólaár yrði svo tekið fyrir kennsla, kennsluhættir, nám og námsárangur. Skólaárið 2014-2015 yrði svo farið í aðbúnað og samtarf heimilis og skóla og í framhaldi af þessu yrði skólanámskráin endurmetin. Eftir hvert mat þarf að gera umbótaáætlun til að bregðast við niðurstöðunum. 3.  Önnur mál. HH segir einnig frá því að í framhaldi af tveggja vikna heilsuátaki sem var í byrjun október hafi komið upp hugmynd um að þróunarverkefni um að gera skólann að heilsuskóla. Axel Sæland ritaði fundargerð
Er eitthvað á síðunni sem betur má fara?