Skólanefnd

13. fundur 07. nóvember 2011 kl. 08:54 - 08:54
13. fundur Fræðslunefndar Bláskógabyggðar þriðjudagur 25. október 2011 Grunnskólinn Reykholti Sameiginlegur vinnufundur v. skólastefnu Mætt: Bryndís Böðvarsdóttir formaður (BB), Smári Stefánsson ritari (SS), Valgerður Sævarsdóttir varaformaður (VS), Hrund Harðardóttir skólastjóri (HH), Sigurlaug Jónsdóttir fulltrúi kennara (SJ). Agnes Heiður Magnúsdóttir fulltrúi starfsmanna (AHM), Sólveig Björg Aðalsteinsdóttir leikskólastjóri Gullkistunnar (SBA), Júlíana Tyrfingsdóttir leikskólastjóri Álfaborg (JT), Ragnhildur Sævarsdóttir fulltrúi foreldra á Gullkistu (RS). Guðný Tómasdóttir áheyrnarfulltúri frá Grímsnes- og Grafningshreppi (GT). Forfallaðir: Heiða Björg Hreinsdóttir fulltrúi foreldra í grunnskólanum, Henrietta Ósk Gunnarsdóttir fulltrúi foreldra í Álfaborg (HB), 1.  Áframhaldandi vinna við gerð skólastefnu Bláskógabyggðar. Unnið var út frá drögum sem sveitarstjórn fékk til umsagnar í júní og gekk þessi vinna vel. Stefnum á að ljúka gerð skólastefnunnar á næstu vikum. 2.  Önnur mál: a)  Hrund skólastjóri vísaði í greinargerð sem hún og Sigmar aðstoðarskólastjóri höfðu skrifað fræðslunefnd þar sem þau leggja til að elstu bekkir grunnskólans á Laugarvatni stundi alfarið sitt nám í Reykholti. Með þessu fyrirkomulagi fá nemendur tækifæri til að stunda nám með jafnöldrum, í stærri hópum (þó ekki fjölmennum) og styrkjast félagslega. Telja þau að faglegum og félagslegum þörfum nemenda sem nú stunda nám á Laugarvatni verði betur sinnt með sameiningu. Á síðasta fundi sveitarstjórnar var tilnefndur vinnuhópur sem gerir tillögur að eflingu skólastigaanna, framtíðarfyrirkomulagi og hagræðingu í innra starfi. Vinnuhópurinn leggur tillögur sínar fyrir desemberfund sveitarstjórnar og hefur fengið greinargerð skólastjórnenda í hendurnar. b)  Guðný kom með fyrirspurn/beiðni til grunnskólans varðandi skráningu á heimanám. Hrund ætlar að taka málið til athugunar. Fundi slitið kl 17.00
Er eitthvað á síðunni sem betur má fara?