Skólanefnd

6. fundur 04. febrúar 2011 kl. 08:50 - 08:50
6. fundur Fræðslunefndar Bláskógabyggðar miðvikudaginn 26. jan. 2011 í Reykholti Mættir: Bryndís Böðvarsdóttir formaður (BB), Axel Sæland ritari (AS), Valgerður Sævarsdóttir varaformarður (VS), Agnes Magnúsdóttir leikskólastjóri Álfaborgar (AM), Henríetta Ósk Gunnarsdóttir fulltrúi foreldra á Álfaborg (HÓG), Sólveig Björg Aðalsteinsdóttir leikskólastjóri Gullkistunnar (SBA), Ragnhildur Sævarsdóttir fulltrúi foreldra á Gullkistu (RS), Dröfn Þorvaldsdóttir varamaður (DÞ). Kristín Ingunn Haraldsdóttir fulltrúi starfsmanna Álfaborgar og Gullkistunnar (KIH) var forfölluð. Leikskólar (15:00 ? 16:00) 1)  Fjárhagsáætlun Gullkistunnar 2011 lögð fram og kynnt. Sólveig kynnti nýja fjárhagsáætlun sem hefur verið samþykkt af sveitarstjórn. 2)  Aukafjárveiting til Gullkistu vegna barna með sérþarfir. Fræðslunefnd óskar eftir frekari upplýsingum frá Sólveigu en styður um leið aukafjárveitinguna fram á vor (þ.e. í 5 mánuði) en leggur einnig til að staðan verði endurmetin þá. 3)  Fyrirspurnir frá fulltrúa foreldra (Ragnhildur Sævarsdóttir) í leikskólanum Gullkistu: a)  Sparkvöllurinn. Áhrif gúmmíkurlsins undir gervigrasinu (krabbameinsvaldandi?) Fræðslunefnd vísar í svar umhverfisráðherra (sjá viðhengi.) 4)  Morgunmatur í Gullkistu. Er ástæða til að hætta með morgunmat fyrir börnin ? yrði m.a. sparnaður af því fyrir sveitarfélagið? Fræðslunefnd telur ekki ástæðu til að athuga málið frekar þar sem sveitarfélagið er ekki að ýta á eftir því. Sterkari viðbrögð frá foreldrum þurfa að verða, ef athuga á málið. 5)  Auglýst laus staða í leikskólanum Álfaborg. Fjórir sóttu um stöðuna og Agnes er að taka viðtöl. Gert er ráð fyrir að ráða í stöðuna frá 1.febrúar 6)  Afsláttur á leikskólagjöldum. Nemendur þurfa ekki að skila inn staðfestingu á að hafa klárað tilgreindar einingar, eingöngu að skila inn staðfestingu á skólavist. 7)  Skólastefna Bláskógabyggðar. Ákvörðun sveitarstjórnar um skipun í verkefnishóp. Fræðslunefnd fagnar ákvörðun sveitarstjórnar með að halda skólaþing. 8)  Námskeið í boði fyrir fræðslunefndir. Samband íslenskra sveitarfélaga í samstarfi við mennta- og menningarmálaráðuneytið og Heimili og skóla bjóða fulltrúum í fræðslunefndum upp á námskeið. Fræðslunefnd hvetur nefndarmenn til að kynna sér námskeiðin og sækja þau. 9)  Önnur mál.   a)  Leikskólastjórar lýsa yfir áhyggjum sínum á því hvað verður um þá þjónustu sem Skólaskrifstofan Suðurlands veitir leikskólum Bláskógabyggðar í dag, ef henni verður lokað. Leikskólastjórar hvetja stjórnendur sveitarfélagsins til að gera allt hvað þeir geta til að svo verði ekki. Fræðslunefnd tekur undir orð leikskólastrjóranna. Grunnskóli (16:00 ? 17:00) Mættir: Bryndís Böðvarsdóttir formaður (BB), Axel Sæland ritari (AS), Valgerður Sævarsdóttir varaformarður (VS), Arndís Jónsdóttir skólastjóri (AJ), Sigmar Ólafsson aðstoðarskólastjóri (SÓ), Sigurlaug Jónsdóttir fulltrúi kennara (SJ), Dröfn Þorvaldsdóttir varamaður (DÞ). Heiða Björg Hreinsdóttir (HBH) fulltrúi foreldra var forfölluð. 1.  Fjárhagsáætlun Grunnskóla Bláskógabyggðar 2011 lögð fram og kynnt. Sigmar lagði fram og kynnti fjárhagsáætlun fyrir árið 2011 og sagði frá liðnu ári þ.e. hvernig það stóðst áætlun. 2.  Skólastefna Bláskógabyggðar. Ákvörðun sveitarstjórnar um skipun í verkefnishóp. Fræðslunefnd fagnar ákvörðun sveitarstjórnar með að halda skólaþing. 3.  Námskeið í boði fyrir fræðslunefndir. Samband íslenskra sveitarfélaga í samstarfi við mennta- og menningarmálaráðuneytið og Heimili og skóla bjóða fulltrúum í fræðslunefndum upp á námskeið. Fræðslunefnd hvetur nefndarmenn til að kynna sér námskeiðin og sækja þau. 4.  Önnur mál. Engin
Er eitthvað á síðunni sem betur má fara?