Æskulýðsnefnd

11. fundur 11. janúar 2013 kl. 09:53 - 09:53

Ellefti fundur æskulýðsnefndar.

Efri?Reykjum þriðjudaginn 4. desember 2012. kl. 17:30

Mættir: Rúnar Gunnarsson, formaður, Sigurlína Kristinsdóttir og Smári Þorsteinsson

1. Íþróttamaður Bláskógabyggðar 2012. Farið var yfir undirbúning síðasta árs á vali á

íþróttamanni ársins og smávægilegar breytingar gerðar á 7. grein reglugerðarinnar.

7. Grein

Í hófi til heiðurs íþróttafólki Bláskógabyggðar skal einnig veita viðurkenningar til íþróttafólks sem

hefur unnið sér landsliðssæti (unglinga, karla eða kvenna) í sinni íþróttagrein. Þá skal einnig veita

viðurkenningar til þeirra sem unnið hafa Íslandsmeistaratitla og/eða bikarmeistaratitla á árinu.

Viðkenningar þessar skulu veittar óháð aldri viðkomandi íþróttafólks.

Rætt var um að hafa valið með sama hætti og í fyrra, það er að segja að hafa samband við

sömu íþróttafélög. Áætlaður kostnaður fyrir verðlaunagripi er um 50 þúsund krónur fyrir

þetta ár, það eru verðlaunapeningar og eignagripir 50 þúsund. Gert er ráð fyrir

kaffiveitingum fyrir gesti sem gæti kostað um 50 þúsund krónur. Nefndin óskar eftir að

sveitasjóður greiði fyrir verðlaunagripi og kaffiveitingar ásamt því að leggja til aðstöðu fyrir

hófið í Aratungu. Áætlað er á að hafa hófið í Aratungu sunnudaginn 13. janúar 2013 kl.

14:00.

2. Verkum var skipt á milli nefndarmanna. Rúnar hefur tekið að sér að athuga með

verðlaunagripi og Sigurlína ætlar að sjá um dreifibréf sem fer á hvert heimili í

Bláskógabyggð. Smári ætlar að tala við Jón í Aratugu um að fá kaffiveitingar í lok

samkomunar, við Hafdísi um uppröðun í salinn og tala við Espiflöt um blóm fyrir þá sem

tilnefndir eru.

3. Ætlunin er að koma auglýsingu í Bláskógafréttir sem fyrst, helst í desember.

Fundi sitið kl: 18:45

Smári Þorsteinsson.  
Er eitthvað á síðunni sem betur má fara?