Vorhittingur 2013 hjá ferðaþjónustuaðilum í Uppsveitum Árnessýslu þriðjudaginn 14. maí kl 14.00
Fréttir
02.05.2013
Ferðaþjónustuaðilar í Uppsveitum Árnessýslu
Vorhittingur 2013
Þriðjudaginn 14. maí kl. 14:00
í Þjórsárstofu í Félagsheimilinu Árnesi
Nú er tímabært að halda vorhitting ALLRA ferðaþjónustuaðila í Uppsveitum Árnessýslu
Það er alltaf eitthvað nýtt að bætast við og breytingar hafa orðið á mörgum stöðum síðan síðast.
Það er svo mikilvægt að við þekkjum okkar svæði Uppsveitir Árnessýslu út og inn og hvert annað. Getum vísað gestum á sitthvað skemmtilegt í nágrenninu og fengið þá til að stoppa lengur.
Við erum að tala um allar fjórar sveitirnar og ALLA sem eru í ferðaþjónustu eða tengdum greinum. Bláskógabyggð, Hrunamannahreppur, Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Grímsnes- og Grafningshreppur.
Staðsetning er breytileg frá ári til árs til að vera hreifanleg um svæðið. Í ár hittumst við í Þjórsárstofu.
Fyrirkomulag verður það sama og síðast. Allir koma og hafa með sér sitt kynningarefni, bæklinga, plaköt, dregla o.s.frv. Við munum kynna okkur og kynnast, skoða, drekka kaffi og spjalla saman. Þeir sem eiga ekki kynningarefni koma bara með góða skapið. Sumarstarfsfólkið er að sjálfsögðu velkomið. Handverksfólk er velkomið.
Vinsamlegast látið mig vita um komu ykkar
í netpósti asborg@ismennt.is eða síma 898-1957
Bestu kveðjur
Ásborg