VÍS gefur endurskinsvesti í leikskólana í Bláskógabyggð
Fréttir
22.12.2009
Leikskólanum í Reykholti voru afhent endurskinsvesti 21. desember frá Vátryggingarfélagi Íslands, eins og meðfylgjandi myndir sýna þegar staðgengill skólastjóra veitir þeim viðtöku frá Smára Kristjánssyni frá VÍS. Einnig var farið í leikskólann Gullkistuna að Laugarvatni og afhent endurskinsvesti sama dag, veitti skólastjóri þeim viðtöku eins og kemur fram á meðfylgjandi mynd.
Það er von og reyndar vissa að þau komi að góðum notum.
VÍS hefur alltaf haft forvarnir í hávegum og er þessi gjöf til staðfestingar þess.
![8872_Afhending endurskinsvesta 056](files/static/files/eldra/2015/04/8872_afhending-endurskinsvesta-056.jpg)
![8873_Afhending endurskinsvesta 058](files/static/files/eldra/2015/04/8873_afhending-endurskinsvesta-058.jpg)