Flokkstjóri óskast

Fréttir 13.03.2025

Flokkstjóri óskast

Bláskógabyggð óskar eftir að ráða flokksstjóra yfir vinnuskóla sveitarfélagsins og umhirðu opinna svæða og tilfallandi umhverfisverkefna sumarið 2025. Aldurstakmark er 20 ár, kröfur eru gerðar um almenn ökuréttindi og hreint sakavottorð. Starfstími er frá lok maí til loka júlí. Möguleiki er á starfi til 20 ágúst. Starfsvæðið er á Laugarvatni, í Laugarási og í Reykholti. Umsóknarfrestur er til 4. apríl nk. Einstaklingar eru hvattir til að sækja um, óháð kyni.

Umsóknir berist á netfangið kristofer@blaskogabyggd.is.

Upplýsingar gefur Kristófer í síma 860-4440 og 480- 3000.