Flokkstjóri óskast

Fréttir 03.05.2024

Flokkstjóri óskast

Bláskógabyggð óskar eftir að ráða flokkstjóra yfir vinnuskóla sveitarfélagsins og umhirðu opinna svæða og tilfallandi umhverfisverkefna sumarið 2024. Aldurstakmark er 20 ár, kröfur eru gerðar um almenn ökuréttindi og hreint sakavottorð. Starfstími er frá lokum maí til loka júlí. Möguleiki er á starfi til 20. ágúst. Starfsvæðið er á Laugarvatni, í Laugarási og í Reykholti. Umsóknarfrestur er til 15. maí nk. Einstaklingar eru hvattir til að sækja um, óháð kyni.

Umsóknir berist á netfangið kristofer@blaskogabyggd.is.

Upplýsingar gefur Kristófer í síma 860-4440 og 480- 3000.