Vinnuskóli Bláskógabyggðar 2022

Fréttir 07.04.2022
Flokkstjóri óskast Bláskógabyggð óskar eftir að ráða flokksstjóra yfir vinnuskóla sveitarfélagsins og umhirðu opinna svæða og tilfallandi umhverfisverkefna sumarið 2022. Aldurstakmark er 20 ár, kröfur eru gerðar um almenn ökuréttindi, hreint sakavottorð og lipurð í samskiptum. Starfstími er frá miðjum maí til loka júlí. Möguleiki er á starfi til 20 ágúst. Starfssvæðið er á Laugarvatni, Laugarási og í Reykholti. Launakjör eru samkvæmt FOSS. Umsóknarfrestur er til 20 apríl. Umsóknir berist á netfangið kristofer@blaskogabyggd.is. Nánari upplýsingar um starfið gefur Kristófer í síma 860-4440 og 480- 3000.