Vindhemskórinn frá Uppsala heldur tónleika í Skálholtskirkju, Þriðjudaginn 21. júní kl 20:00-21:00 - Aðgangur ókeypis

Fréttir 14.06.2016
Vindhemskórinn frá Uppsölum, Svíþjóð   Tónleikar kórsins spanna yfir bæði veraldlega og kirkjulega tónlist frá Norðurlöndunum og Evrópu allt frá fimmtándu öld til okkar daga. Kórinn mun einnig syngja afróameríska tónlist eftir Duke Ellington, Oskar Peterson og fleiri.   Stutt kynning Heimkynni kórsins er Vindhemskirkjan í Uppsölum. Kórinn var stofnaður 1962, en Peter Melin hefur stjórnað honum frá 1996. Með frá Uppsölum eru einnig Anders Bromander, sem píanisti og Karin Parkman, sem þverflautuspilari, en bæði eru þau velkunnug kórnum sem undirleikarar og Anders einnig sem tónskáld. Heima fyrir syngur kórinn reglulega við messur, en tekur einnig þátt í flutningi stærri verka fyrir kór, einsöngvara og hljómsveit. Efnisskráin inniheldur kirkjutónlist, stærri kórverk, norræna kórlyrik, en einnig gospel og djass. Nýlega hefur kórinn flutt Orff: Carmina Burana, G. F. Händel: Messiah, J. S. Bach: The Passion of St John, Y. Pontvik: Mångfaldsmässa (messa með innblástur af suðuramerískum töktum) og Duke Ellington: Sacred Concert (í samvinnu við Uppsala University Jazz Orchestra). Peter Melin, kórstjóri Fyrir utan Vindhemskórinn stjórnar Peter tveimur öðrum kórum "Vokalensemblen Uppslaget" og "Enköpings Kammarkör". Vindhemskórinn og þessir kórar hafa stundum fært upp stærri verk í samvinnu. Karin Parkman, þverflauta, Sóloflautuleikari, tónmenntakennari og kórstjóri. Anders Bromander, piano, Organisti, píanóleikari og tónskáld.