Viðhorfskönnun meðal sunnlendinga um gjaldtöku á ferðamannastöðum
Fréttir
28.01.2014
Þessa dagana standa SASS ? Samtök sunnlenskra sveitarfélaga, ásamt Markaðsstofu Suðurlands, fyrir viðhorfskönnun á meðal Sunnlendinga um gjaldtöku á ferðamannastöðum.
Þessi umræða er m.a. í gangi á Alþingi og í ráðuneyti ferðamála og á mikið erindi við Sunnlendinga enda er Suðurland eitt fjölsóttasta ferðamannasvæði landsins. Það skiptir verulega máli fyrir landshlutann að afrakstur gjaldtökunnar muni skila sér í auknum fjármunum til uppbyggingar og verndunar á ferðamannastöðum á Suðurlandi.
Það er tímabært að rödd okkar Sunnlendinga heyrist.
Þess vegna hefur verið ákveðið að kanna viðhorf Sunnlendinga /sunnlenskra ferðaþjónustuaðila til gjaldtöku á ferðamannastöðum.
Hvetjum ykkur til að nýta tækifærið og taka þátt í könnuninni á vefsíðunni www.sass.is.