Viðburðadagatal "Leyndardóma Suðurlands"
Fréttir
24.03.2014
Föstudaginn 28. mars k. 14:00 hefst kynningarátakið Leyndardómar Suðurlands þegar ráðherrar Suðurkjördæmis, þau Ragnheiður Elín Árnadóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson, ásamt Gunnari Þorgeirssyni, formanni Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga mæta við Litlu Kaffistofuna og klippa á borða og opna þar með 10 daga hátíð á Suðurlandi. Samtök sunnlenskra sveitarfélaga, sem standa að átakinu bjóða frítt í Strætó alla þessa daga frá Reykjavík um allt Suðurland. Tæplega 200 viðburðir eru skráðir til leiks á leyndardómunum og fór þátttakan langt fram úr björtustu vonum skipuleggjenda.
Hér kemur viðburðadagatal um leyndardóma Suðurlands hægt er að smella hér fyrir neðan til að nálgast bæklinginn og dagatalið.
Bæklingur
Leyndardómar Suðurlands
Dagatalinu verður dreift inn á öll heimili á Suðurlandi á miðvikudag og fimmtudag í næstu viku.
Það vantar viðburði þarna inn en það eru viðburðir sem komu of seint til að ná inn í dagatalið.
Þeir fara allir inn á www.sudurland.is með öllu sem er á dagatalinu.