Verkfallsboðun FOSS

Fréttir 04.03.2020
FOSS, stéttarfélag, hefur samþykkt að boða til verkfalls. Verkfallsaðgerðir munu hefjast mánudaginn 9. mars n.k., takist samningar ekki fyrir þann tíma. Komi til verkfalls mun það hafa mikil áhrif á starfsemi sveitarfélagsins, enda er talsverður fjöldi starfsmanna þess félagar í FOSS. Verkföll hafa verið boðuð 9. og 10. mars, 17. og 18. mars, 24. og 26. mars og 31. mars og 1. apríl, náist ekki samningar. Íbúar eru hvattir til að fylgjast með tilkynningum á heimasíðu sveitarfélagsins og á facebook.