Velkomin í Reykholt Biskupstungum laugardaginn 9. júní
Opin hús víða í Reykholti þessa helgi
Garðyrkjustöðin Espiflöt Blönduð blómarækt á afskornum blómum. Opið frá 10.00 - 16.00, kaffi á könnunni og blóm til sölu. Leiðsögn um garðyrkjustöðina kl. 11.00, 13.00 og 15.00.
Garðyrkjustöðin Kvistar Plöntusala opin kl. 10.00 - 19.00. Kl. 10.00 og kl. 15.00 gengið um garðyrkjustöðina. Kynning á ræktun á skógarplöntum, hindberjum og jarðaberjum.
Myndlist í hesthúsi Vinnustofan í hesthúsahverfinu. Opið kl. 11:00-18:00. Til sýnis og sölu, myndir og listmunir sem tengjast íslenska hestinum. Myndlistarhorn fyrir börn, penslar, blöð og litir.
Bjarnabúð Allt sem þig vantar og tilboð á ís. Opið kl. 9:00-21:00. Friðheimar Kynning á áhugaverðri nýjung í ferðaþjónustu. Gestastofa í nýju gróðurhúsi og sýningin ?Ylrækt á Íslandi- stiklur úr sögu?. Opið hús kl. 15:00-17:00 og tómatasúpa í pottinum. Allir hjartanlega velkomnir. Kaffi ?Klettur Trúbadorinn Eiríkur Hafdal föstudag kl 22:00-02:00. Þjóðlegt kaffihlaðborð kl. 15:00-17:00 laugardag, söngur á pallinum. Tónleikar laugardag kl.22:00 Rölt eftir rúgbrauði upp að hver á sunnudagsmorgun kl. 11:00
Bjarkarhóll Prjónabúðin Björk kynnir nýtt prjónablað. Tískusýning kl 14:00 með flíkum úr blaðinu. Ofurtilboð í búðinni. Café Mika Opið frá kl. 10:00 ? 21:00. Hoppukastali fyrir börnin og helíumblöðrur. Myndlistarsýning, Gréta Gísladóttir sýnir. Nýjungar á matseðli.
Iceland Riverjet, Bjarkarhól Ævintýrasiglingar á Jetbát á Hvítá, 20% afsláttur. Opið 11.00-17.00. Bóka þarf fyrirfram s. 863 4506.
Garðyrkjustöðin Birkihlíð ?Nú er sumar, nú plöntum við? Garðplöntusala, sumarblóm, tré og runnar. Opið kl. 9:00-21:00.
Sundlaugin í Reykholti Opin 10:00-18:00.