Útgáfutónleikar Skálholtskórsins
Fréttir
12.11.2007
Aðgangur ókeypis
Laugardaginn 17. nóvember kl 17.00
heldur Skálholtskórinn útgáfutónleika í Skálholtsdómkirkju,
þar sem meðal annars verður flutt tónlist af geisladiski kórsins
?Mín sál, þinn söngur hljómi? sem út kom í haust á vegum Skálholtsstaðar. Einnig verður flutt kantatan ?Leyfið börnunum að koma til mín? eftir Jón Ásgeirsson og tónlist við ljóð Jónasar Hallgrímssonar, en þann 16. nóvember, á Degi hinnar íslensku tungu, eru liðin 200 ár frá fæðingu hans.
Gestakór
Barna- og Kammerkór Biskupstungna
Einsöngvari
Hrólfur Sæmundsson
Stjórnandi
Hilmar Örn Agnarsson
Allir hjartanlega velkomnir