Útboð vegna tæmingar rotþróa í Bláskógabyggð og Grímsnes- og Grafningshreppi
Fréttir
21.03.2011
ÚTBOÐ
Tæming rotþróa í Bláskógabyggð
og Grímsnes- og Grafningshreppi
Sveitarfélögin Bláskógabyggð og Grímsnes- og Grafningshreppur óska eftir tilboðum í verkið ?Tæming rotþróa í Bláskógabyggð og Grímsnes- og Grafningshreppi?.
Samningstímabil þessa útboðs er frá 15. maí 2011 til 31. október 2013.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofum sveitarfélaganna frá og með þriðjudeginum 22. mars n.k. gegn 5.000.- kr. skilagjaldi.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Bláskógabyggðar fyrir kl. 14:00 miðvikudaginn 11. maí 2011, en þá verða þau opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Sveitarstjórinn í Bláskógabyggð og
Sveitarstjórinn í Grímsnes- og Grafningshreppi.