Útboð - snjómokstur
Fréttir
28.09.2011
Bláskógabyggð óskar eftir tilboði í snjómokstur í þéttbýliskjörnum Bláskógabyggðar, þ.e. Laugarási, Laugarvatni og
Reykholti. Óskað er eftir tilboðum í almennan snjómokstur í hverjum þéttbýliskjarna fyrir sig og verður gerður
samningur um snjómoksturinn til 4. ára.
Útboðsgögn fást á skrifstofu sveitarfélagsins í Aratungu, Reykholti, 801 Selfossi og skal skila
tilboðum inn fyrir kl. 11:00 fimmtudaginn 6. október n.k. á sama stað. Nánari upplýsingar
gefur Kristinn J. Gíslason sviðsstjóri Þjónustu- og framkvæmdasviðs Bláskógabyggðar, sími 486-8726.