Útboð ræstinga í Reykholtsskóla

Fréttir 08.06.2022
Bláskógabyggð óskar eftir tilboðum í ræstingu og hreingerningu Reykholtsskóla í Reykholti. Upphaf verktíma er við skólabyrjun í ágúst 2022. Verkefnið felst í ræstingu og hreingerningu grunnskólans. Útboðsgögn verða afhent á stafrænu formi frá og með 9. júní 2022. Þeir sem óska eftir að fá gögnin afhent sendi tölvupóst á asta@blaskogabyggd.is eða hafi samband í síma 480 3000. Tilboðum skal skilað til Bláskógabyggðar, Aratungu, Reykholti, fyrir kl. 12 miðvikudaginn 22. júní 2022, þar sem þau verða opnuð að viðstöddum þeim sem þess óska.