Útboð -Laugarvatn - Grassláttur

Fréttir 03.05.2022
Útboð Bláskógabyggð óskar eftir tilboðum í verkið: Laugarvatn - Grassláttur   Verkið felur í sér grasslátt á Laugarvatni.  Slá skal grasfleti fyrir Bláskógabyggð og Menntaskólann að Laugarvatni  samanber útboðslýsingu.   Helstu magntölur eru: Grassláttur samtals                                                        97.000 m2   Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi frá og með mánudeginum 2. maí 2022.  Þeir sem hyggjast gera tilboð í verkið skulu hafa samband við Eggert hjá eflu Suðurlandi með því að senda  tölvupóst á netfangið eggert.sveinsson@efla.is  og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang og fá í kjölfarið útboðsgögnin send í tölvupósti. Tilboðum skal skila til skrifstofu Bláskógabyggðar, Reykholti 806 Selfossi, fyrir kl. 10:30 fimmtudaginn 12. maí og verða þau opnuð þar að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. F.h. Bláskógabyggðar