Útboð - Hverabraut 2 ? Íþróttagólf endurnýjun
Fréttir
15.03.2022
Útboð
Bláskógabyggð óskar eftir tilboðum í verkið:
Hverabraut 2 ? Íþróttagólf endurnýjun
Verklok eru 01.10.2022
Verkið felur í sér útvegun og lagningu á flatfjaðrandi (Area-elastic) parket íþróttagólfi á gólf íþróttasalar í íþróttahúsinu að Hverabraut 2 á Laugarvatni. Áður en vinna við gólflögn hefst skal verktaki undirbúa allar gólffestingar sem festa skal í steypu. Gert er ráð fyrir að gólfið verði lagt á núverandi dúk og á að afhendast fullfrágengið með gólflistum á jöðrum, festihólkum fyrir tækjabúnað og markalínum samkvæmt teikningum, efnis og verklýsingu.
Helstu stærðir eru:
? Gólfflatarmál 1333m²
? Aðstaða fyrir varamenn og stjórnendur 37 m²
? Aflagðar festingar 46 stk
? Nýjar festingar 30 stk
? Merkingar á gólfi 2156m
? Færsla á áhorfendapöllum 7 stk
Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi frá og með mánudeginu 14. mars 2022. Þeir sem hyggjast gera tilboð í verkið skulu hafa samband við Baldvin hjá Eflu Suðurlandi með því að senda tölvupóst á netfangið baldvin.arnason@efla.is og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang og fá í kjölfarið útboðsgögnin send í tölvupósti.
Tilboðum skal skila til skrifstofu Bláskógabyggðar, Reykholti 806 Selfossi, fyrir kl. 11:00 miðvikudaginn 30. mars og verða þau opnuð þar að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
F.h. Bláskógabyggðar