Útboð á slætti og hirðingu í Laugarási og Reykholti
Fréttir
21.03.2011
ÚTBOÐ
Sláttur og hirðing í Laugarási og Reykholti
Bláskógabyggð óskar eftir tilboðum í verkið ?Sláttur og hirðing í Laugarási og Reykholti?.
Samningstímabil þessa útboðs er frá 15. maí 2011 til 15. september 2013. Heildarstærð verkstaða samkvæmt útboðsgögnum er 70.892 m2.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Bláskógabyggðar í Aratungu, Reykholti, frá og með þriðjudeginum 22. mars gegn 5000 kr. skilagjaldi.
Kynningarfundur á útboðsgögnum og verkþáttum verður í Félagsheimilinu Aratungu kl. 14:00 miðvikudaginn 30. mars. Í framhaldi af fundinum verður vettvangsskoðun á verkstöðum í Reykholti og Laugarási.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Bláskógabyggðar, Aratungu, Reykholti, 801 Selfossi, fyrir kl. 14:15 fimmtudaginn 14. apríl 2011, en þá verða þau opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Nánari upplýsingar veitir Halldór K. Hermannsson sviðsstjóri Þjónustu- og framkvæmdasviðs Bláskógabyggðar í síma 486-8726.
Bláskógabyggð