Útboð

Fréttir 10.04.2012
Sláttur og hirðing í Laugarási og Reykholti   Bláskógabyggð óskar eftir tilboðum í verkið Sláttur og hirðing í Laugarási og Reykholti. Samningstímabil þessa útboðs er frá 15. maí 2012 til 15. september 2014. Heildarstærð verkstaða samkvæmt útboðsgögnum er  70.057 m2. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Bláskógabyggðar í Aratungu, Reykholti, frá og með miðvikudeginum 11. apríl gegn 5000 kr. skilagjaldi. Tilboðum skal skila á skrifstofu Bláskógabyggðar, Aratungu, Reykholti, 801 Selfossi, fyrir kl. 14:00 mánudaginn 23. apríl 2012, en þá verða þau opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Nánari upplýsingar veitir Kristinn J. Gíslason sviðsstjóri Þjónustu- og framkvæmdasviðs Bláskógabyggðar í síma 486-8726.