Uppsveitahringurinn 2013

Fréttir 13.08.2013
Laugardaginn 7. september, n.k., verður íþróttaviðburðurinn ?Uppsveitahringurinn? haldinn í annað sinn þar sem hlaupið og hjólað verður um uppsveitir Árnessýslu. Keppnin er í tengslum við Uppskeruhátíðina í Hrunamannahreppi sem fram fer sama dag. Vegalengdirnar í ár eru 10 km. hlaup, 46 km. hjólreiðar og 10 km. hjólreiðar sem er ný grein í Uppsveitahringnum í ár. Ein drykkjarstöð verður á leiðinni. Í hlaupinu og 10 km. hjólreiðunum verður lagt af stað frá Reykholti og endað á Flúðum, keppendur verða að koma sér sjálfir á milli staða. Í lengri hjólreiðunum verða þátttakendur ræstir út á Flúðum og munu þeir hjóla hring um uppsveitirnar sem er um 46 km að lengd. Lagt verður af stað frá Flúðum og hjólað í gegnum Skeiða- og Gnúpverjahrepp, þaðan yfir í Bláskógabyggð, í gegnum Laugarás og Reykholt, yfir brúna við Bræðratungu og inn á Flúðir í Hrunamannahreppi þar sem endamarkið verður staðsett. Á þessari vegalengd verða ræstir út tveir hópar, skemmtihjólreiðahópur og keppnishjólreiðahópur.  Tímasetningar Kl. 10.30 ? Skemmtihjólreiðahópurinn leggur af stað frá Flúðum. Kl. 12.00 ? Keppnishjólreiðahópurinn leggur af stað frá Flúðum. Kl. 12.30 ? Hlauparar leggja af stað frá Reykholti. Kl. 13:30 ? Hjólreiðahópurinn (10 km.) leggur af stað frá Reykholti. Verðlaunaafhending fer fram á Flúðum að lokinni keppni eða um kl. 14.00. Skráning er á www.hlaup.is en skráningarfrestur er til fimmtudagsins 5. september. Þátttökugjald er 2.000 kr., nema í 10 km. hjólreiðarnar þar sem gjaldið er 1.000 kr. Frítt verður í sund fyrir keppendur í sundlaugarnar á Flúðum og í Reykholti. Allir keppendur fá bol sem merktur er hlaupinu. Allir keppendur fá verðlaunapeninga, en veitt verða sérstök verðlaun fyrir 3 efstu sætin í karla- og kvennaflokki. Keppendur geta nálgast keppnisnúmer og keppnisgögn milli kl. 16:00-18:00 föstudaginn 6. september í Íþróttamiðstöðinni í Reykholti. Þá er einnig hægt að nálgast keppnisgögnin milli kl. 9:00-11:00 að morgni keppnisdags. Hægt að skrá sig í keppnina á þessum tíma en þá bætast 1.000 kr. við þátttökugjaldið. Starfsmaður Uppsveitahringsins er  Ívar Sæland og er síminn 863-5231 og netfangið ibbisaeli@gmail.com Nánari upplýsingar verða settar inná heimasíður sveitarfélaganna þegar nær dregur keppninni. Slóðirnar eru: www.blaskogabyggd.is, www.fludir.is, www.gogg.is og www.skeidgnup.is. Undirbúningsnefndin