Uppsveitahringurinn - 2012

Fréttir 31.08.2012
Laugardaginn 8. september verður í fyrsta skipti haldinn Uppsveitahringurinn. Stefnt er á að keppnin verði haldin árlega en þar á að hlaupa og hjóla um uppsveitir Árnessýslu. Keppnin í ár er í tengslum við Uppskeruhátíðina í Hrunamannahreppi sem fram fer sama dag á Flúðum. Hlauparar Í ár verður ein hlaupavegalengd í boði en hlaupa á milli Reykholts og Flúða en sú vegalengd er 10 km.  Ein drykkjarstöð verður á leiðinni. Lagt verður af stað frá Reykholti og endað á Flúðum, keppendur verða að koma sér sjálfir á milli staða. Hlauparar hafa aðstöðu í Íþróttamiðstöðinni í Reykholti til að skipta um föt og undirbúa sig fyrir hlaupið. Hjólreiðar Í hjólreiðunum verða hjólreiðamennirnir  ræstir út á Flúðum og munu þeir hjóla hring um uppsveitirnar sem er um 46. km að lengd. Hjólaður verður hringur þar sem lagt verður af stað frá Flúðum og hjólað í gegnum Skeiða- og Gnúpverjahrepp, þaðan yfir í Bláskógabyggð, í gegnum Laugarás og Reykholt, yfir brúna við Bræðratungu og inn á Flúðir í Hrunamannahreppi þar sem endamarkið verður staðsett. Í hjólreiðunum verða ræstir út tveir hópar, skemmtihjólreiðahópur og keppnishjólreiðahópur. Hjólreiðamenn hafa aðstöðu til að skipta um föt og undirbúa sig fyrir hjólreiðarnar í íþróttahúsinu á Flúðum. Tímasetningar Kl. 10.30 ? Skemmtihjólreiðahópurinn leggur af stað frá Flúðum. Kl. 12.00 ? Keppnishjólreiðahópurinn leggur af stað frá Flúðum. Kl. 12.00 ? Hlauparar leggja af stað frá Reykholti. Kl. 14.00 ? Verðlaunaafhending á Flúðum. Skráning Skráning er á www.hlaup.is en skráningarfrestur er til fimmtudagsins 6. september. Skráningargjald er 2000 kr. Einnig verður hægt að skrá sig þann tíma sem keppnisgögnin verða afhent en þá kostar skráningin 3000 kr. Frítt verður í sund fyrir keppendur í sundlaugarnar á Flúðum og í Reykholti. Allir keppendur fá bol sem merktur er hlaupinu. Verðlaun Allir keppendur í Uppsveitahringnum fá verðlaunapeninga, en veitt verði sérstök verðlaun fyrir 3 efstu sætin í karla- og kvennaflokkum. Keppnisgögn Keppendur geta nálgast keppnisnúmer og keppnisgögn milli kl. 14:00-18:00 föstudaginn 7. september í Íþróttamiðstöðinni í Reykholti. Þá er einnig hægt að nálgast keppnisgögnin milli kl. 9:00-11:00 að morgni keppnisdags. Hægt að skrá sig í keppnina á þessum tíma en þá kostar skráningin 3000 kr. Gæsla Gæsla verður í höndum björgunarsveitanna í Uppsveitunum. Nánari upplýsingar er hægt að fá hjá tengiliðum hlaupsins í síma: 661-5935 og 898-1552