Umhverfis- og tæknisvið Uppsveita auglýsir eftirfarandi starf laust til umsóknar:
Fréttir
26.04.2017
Móttökuritari með aðstöðu á Laugarvatni
Starfssvið:
- Símsvörun.
- Skráning og meðhöndlun skjala.
- Svörun fyrirspurna sem berast embættinu, bæði í gegnum síma og tölvupóst.
- Önnur almenn skrifstofustörf.
- Menntunar- og hæfniskröfur:
- Góð almenn tölvukunnátta skilyrði.
- Reynsla af skrifstofuvinnu með áherslu á skjalavinnslu er kostur.
- Sjálfstæði í vinnubrögðum og vilji til að kynna sér nýjungar og takast á við fjölbreytt verkefni.
- Góð þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.Umhverfis- og tæknisvið Uppsveita hefur það hlutverk að annast lögbundin verkefni skipulagsfulltrúa og byggingarfulltrúa fyrir aðildarsveitarfélög byggðasamlagsins auk þess að vinna að tækni- og framkvæmdamálum. Byggðasamlagið er með starfsstöðvar á Laugarvatni í Bláskógabyggð og á Borg í Grímsnes- og Grafningshreppi og þjónar sveitarfélögunum Bláskógabyggð, Grímsnes- og Grafningshreppi, Hrunamannahreppi, Skeiða- og Gnúpverjahreppi, Flóahreppi og Ásahreppi. Umsóknir skulu berast embættinu að Dalbraut 12, 840 Laugarvatni, fyrir 12. maí n.k. Nánari upplýsingar um starf móttökuritara veitir Pétur Ingi Haraldsson skipulagsfulltrúi (petur@utu.is ) í síma 480 5550 milli kl. 9 og 12 alla virka daga.
- Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.