Umhverfis- og tæknisvið Uppsveita
Fréttir
13.11.2017
Óskar eftir að ráða starfsmann í fullt starf.
Umhverfis- og tæknisvið Uppsveita er byggðasamlag sveitarfélaganna Grímsnes- og Grafningshrepps, Bláskógabyggðar, Hrunamannahrepps, Skeiða- og Gnúpverjahrepps, Flóahrepps og Ásahrepps sem hefur það hlutverk að annast lögbundin verkefni byggingarfulltrúa og skipulagsfulltrúa auk verkefna sem varða umhverfis- og tæknimál. Verkefni byggðasamlagsins í umhverfis- og tæknimálum eru margvísleg en þar á meðal er unnið að vatns-, hita, og fráveitumálum, gatnagerð, viðhaldi og nýbyggingum húsa, sorpmálum, vinnslu úrgangs og fleira sem til fellur. Starfsaðstaða er á Borg í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Starfssvið :
- Verkefnastjórnun og verkeftirlit vegna nýframkvæmda og viðhaldsmála á sviði umhverfis- og gatnakerfa.
- Ábyrgð á að framkvæmd verkefna sé í samræmi við lög og reglugerðir.
- Samskipti við opinbera aðila, hönnuði og verktaka.
- Vinna við fráveitumál.
- Vinna við landupplýsingagrunn.
- Vinna við GPS landmælingar.
- Vinna við umhverfismál.
- Áætlanagerð og forgangsröðun verkefna.
- Byggingafræðingur, -tæknifræðingur eða -verkfræðingur eða aðra sambærilega menntun sem nýtist í starfi.
- Reynsla og þekking á fráveitum og gatnagerð.
- Reynsla og þekking á umhverfismálum.
- Reynsla og þekking á verkefnastjórnun.
- Reynsla og þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur.
- Hæfni í mannlegum samskiptum.
- Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og skipulagshæfni.
- Þekking og reynsla af notkun Windows-Office og CAD-hugbúnaðar .