Umferð hleypt á brúna yfir Hvítá við Bræðratungu
Fréttir
29.11.2010
Nú er fyrirhugað að hleypa umferð yfir brúna á Hvítá við Bræðratungu á miðvikudaginn. Vegagerðin hyggst ekki hafa formlega opnun og borðaklippingar fyrr en í vor þegar veginum er endanlega lokið og klæðning komin á hann.
?Tungnakonur búsettar í Hreppnum? og JÁVERK bjóða íbúum Bláskógabyggðar og Hrunamannahrepps að kíkja í kaffi og kleinur og að skoða mannvirkið á milli kl. 15.00 og 17.00 á miðvikudaginn 1. desember nk. í tilefni af því að umferð verður hleypt á nýju brúna yfir Hvítá.
![13373_clip_image002](files/static/files/eldra/2015/04/13373_clip_image002.jpg)