Tónleikar Dómskórsins í Southwark í Lundúnum í Skálholtskirkju 30. maí kl. 16.00

Fréttir 26.05.2015
Þegar steindi glugginn sem Leifur Breiðfjörð gerði fyrir Southwark Cathedral var vígður 2012 kom fram mikill áhugi hjá kórnum að koma til Ísland og er það að rætast núna. Sá áhugi elfdist þegar Kammerkór Suðurlands hélt sína frábæru tónleika í Dómkirkjunni. Kórinn á sér langa og merka sögu og hefur tekið þátt í fjölda viðburða bæði í kirkjunni og eins með þáttöku í listrænum viðburðum. Hann hefur mjög gott orðspor. Smellið hér fyrir neðan til að nálgast auglýsingu tónleikar