Tjaldsvæði Laugarvatni

Fréttir 18.03.2019
Bláskógabyggð auglýsir til leigu tjaldsvæði á Laugarvatni. Um er að ræða land fyrir tjaldsvæði og mannvirki sem tilheyra rekstrinum. Rekstraraðili skal sjá um rekstur svæðisins og mannvirkja sem þar eru, innheimtu afnotagjalda, upplýsingagjöf og þjónustu við ferðamenn, auglýsingar fyrir svæðið og annað tilheyrandi. Leigutaki hefur allar tekjur af rekstri svæðisins, sem og allan kostnað. Til kostnaðar telst m.a. þrif á svæðinu og mannvirkjum, sláttur og eftirlit. Leigusali, Bláskógabyggð, setur upp fast leiguverð fyrir svæðið. Leigutaki hefur möguleika á að greiða leiguverðið að hluta með verkefnum fyrir leigusala, s.s. endurbótum á svæðinu og viðhaldi mannvirkja. Árlegur opnunartími tjaldsvæðisins er að öllu jöfnu fá 1. maí til 30. september, en ráðgert er að bæta aðstöðu fyrir ferðabíla (campera) og þjónusta þá allt árið um kring. Stefnt er að því að nýr rekstraraðili taki við svæðinu fyrir opnun í ár. Leigusamningur verður gerður til fimm ára. Boðið verður upp á skoðun á svæðinu föstudaginn 29. mars 2019 kl. 13. Áhugasamir sendi umsókn á netfangið blaskogabyggd@blaskogabyggd.is í síðasta lagi fimmtudaginn 4. apríl n.k. Nánari upplýsingar veitir Bjarni D. Daníelsson, sviðsstjóri framkvæmda- og veitusviðs í síma 480 3000. Umsækjandi (eða fyrirsvarsmaður umsækjanda) skal:
  • gera grein fyrir reynslu sinni af ferðaþjónustu.
  • gera grein fyrir sýn sinni á rekstur tjaldsvæðisins.
  • hafa reynslu af rekstri.
  • vera reglusamur.
  • hafa hreint sakavottorð hvað varðar brot gegn XXII. kafla almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og brot er varða þátttöku í skipulögðum brotasamtökum, spillingu, sviksemi og peningaþvætti.
  • vera í skilum með opinber gjöld og lífeyrisiðgjöld starfsmanna.
  • leggja fram vottorð Héraðsdóms um búsforræði.
  Bláskógabyggð