Tilkynning til íbúa í Árnessýslu frá Almannavörnum Árnessýslu
Fréttir
22.09.2014
Líkur eru á SO2 gosmengun um allt Suðurland (brennisteinstvíildi, brennisteinsdíoxíð) vegna eldgossins við norðanverðan Vatnajökul.
Þessi mengun er háð styrk gosmengunarinnar hverju sinni, vindátt og vindstyrk og getur verið varasöm, ef hún nær að mynda bláa eða grábláa móðu. SO2 getur m.a. valdið ertingu í öndunarfærum og augum.
Sem stendur eru unnið að uppsetningu loftgæðamæla, m.a. í Þjórsárdal, til viðbótar við þá mæla sem fyrir eru í sýslunni. Mælingar má lesa á vefsíðu Umhverfisstofnunar ust.is undir fyrirsögninni ?loftgæði?
Íbúar eru hvattir til að fylgjast með aðstæðum utandyra, fréttum og upplýsingaveitum á netinu. Ráðlögð viðbrögð við SO2gosmengun, sjá einnig baksíðu þessa blaðs:
Helstu upplýsingveitur:
almannavarnir.is ? sjá m.a. leiðbeiningar um mengun og öskufall
vedur.is ? viðvaranir ef spár gefa til kynna háan SO2 -styrk frá eldgosinu
loftgaedi.is ? loftgæðamælingar í rauntíma á tiltækum mælum
ust.is ? upplýsingasíða og ráðlögð viðbrögð við SO2 gosmengun
landlaeknir.is ? tilkynningar vegna brennisteinsdíoxíðs (SO2) á Austurlandi
mast.is ? upplýsingar um áhrif gosmengunar á dýr
Einnig er bent á heimasíður hvers sveitarfélags fyrir sig
Almannavarnarnefnd vinnur að undirbúningi íbúafunda vegna mögulegra rýminga komi til þess að flóð verði á vatnasviði Þjórsár og eftir atvikum Hvítár vegna goss í Bárðarbungu. Þessir fundir verða boðaðir á heimasíðum hvers sveitarfélags fyrir sig.
Höf: Sóttvarnalæknir, Umhverfissalmannavarnadeild ríkislögreglustjóra
*Meðalgildi í 15 mínútur
**Börn og fullorðnir með astma, berkjubólgu, lungnaþembu og hjartasjúkdóma.
Almennar ráðleggingar:
- Börn og fólk sem er viðkvæmt fyrir, ætti að halda sig innandyra með lokaða glugga, hækka í ofnum og slökkva á loftræstingu þar sem það á við.
- Heilbrigt fólk ætti ekki að vera í líkamlegri áreynslu utandyra.
- Hafa tiltæk lyf sem tekin eru að staðaldri við hjarta- eða lungnasjúkdómum.
- Áhrif SO2 gosmengunar eru svipuð á dýr og menn.
Umhverfisstofnun
Áhrif á heilsufar og ráðleggingar um viðbrögð við SO2 frá eldgosumMagn SO2* | Lýsingar á loftgæðum | Ráðleggingar um aðgerðir | |
µg/m3 | Einstaklingar með undirliggjandi sjúkdóma ** | Heilbrigðir einstaklingar | |
Góð | |||
0-300 | Yfirleitt engin áhrif á heilsufar. | Getur fundið fyrir áhrifum | Engin áhrif á heilsufar |
Viðunandi | |||
300- 600 | Getur valdið óþægindum í öndunarfærum hjá einstaklingum með undirliggjandi sjúkdóma. | Farið með gát, fylgist með mælingum. | Áhrif á heilsufar ólíkleg. |
Varasöm | |||
600-3.000 | Einkenni frá öndunarfærum líkleg hjá einstaklingum með undir-liggjandi öndunarfærasjúkdóma. Lítil vandamál hjá heilbrigðum. | Forðist áreynslu utandyra. | Áhrif á heilsufar ólíkleg en gagnlegt að draga úr áreynslu utandyra. |
Óhollt | |||
3.000-9.000 | Einkenni frá öndunarfærum líkleg hjá öllum einstaklingum, einkum einstaklingum með undirliggjandi öndunarfærasjúkdóma. | Dveljið innandyra og lokið gluggum. Slökkvið á loftræstingu. | Forðist áreynslu utandyra. Þeir sem hafa tök á haldi sig innandyra, loki gluggum og slökkvi á loftræstingu. |
Mjög óhollt | |||
9.000-14.000 | Allir líklegir til að finna fyrir miðlungs- eða alvarlegum einkennum frá öndunarfærum. | Dveljið innandyra og lokið gluggum. Slökkvið á loftræstingu. Fylgist með ráðleggingum yfirvalda. | Dveljið innandyra og lokið gluggum. Slökkvið á loftræstingu. Fylgist með ráðleggingum yfirvalda. |
Hættuástand | |||
>14.000 | Alvarleg einkenni frá öndunarfærum líkleg. | Dveljið innandyra og lokið gluggum. Slökkvið á loftræstingu. Fylgist með ráðleggingum yfirvalda. | Dveljið innandyra og lokið gluggum. Slökkvið á loftræst-ingu. Fylgist með ráðleggingum yfirvalda. |
- Andið sem mest með nefi
- Dveljið innandyra og lokið gluggum
- Slökkvið á loftræstingu ef móða er áberandi í umhverfinu
- Lungna- og hjartasjúklingar hafi sín lyf tiltæk