Þjóðhátíðarsjóður umsóknarfrestur um styrki er til og með 31. ágúst 2010

Fréttir 21.06.2010

Þjóðhátíðarsjóður umsóknarfrestur um styrki er til og með 31. ágúst 2010

Þjóðhátíðarsjóður auglýsir eftir síðustu umsóknum um styrki úr sjóðnum árið 2010 vegna ársins 2011. Þjóðhátíðarsjóður, sem starfar samkvæmt skipulagsskrá nr. 361 frá 30. september 1977 með áorðnum breytingum, var stofnaður í tilefni af 1100 ára búsetu á Íslandi 1974. Tilgangur sjóðsins er: að veita styrki til stofnana og annarra aðila, er hafa það verkefni að vinna að varðveislu og vernd þeirra verðmæta lands og menningar, sem núverandi kynslóð hefur tekið í arf. Við það skal miðað, að styrkir úr sjóðnum verði viðbótarframlög til þeirra verkefna, sem styrkt eru, en verði ekki til þess að lækka önnur opinber framlög til þeirra eða draga úr stuðningi annarra við þau. Á síðasta ári veitti sjóðurinn 65 styrki samtals að fjárhæð 33,9 m.kr. Þetta er síðasta almenna úthlutun sjóðsins sem verður að fjárhæð samtals um 34 m.kr. Að henni lokinni lýkur úthlutunum sjóðsins, sbr. skipulagsskrá. Umsóknir Einungis verður tekið við umsóknum á þar til gerðum eyðublöðum. Þau má finna á vefsíðu Seðlabanka Íslands hér. Enn fremur má nálgast eyðublöð í afgreiðslu Seðlabankans, Kalkofnsvegi 1, Reykjavík. Umsóknarfrestur er til og með 31. ágúst 2010 og er stefnt að því að úthlutað verði úr sjóðnum 1. desember 2010 með athöfn í Þjóðmenningarhúsinu. Umsóknir skal senda Þjóðhátíðarsjóði, Seðlabanka Íslands, Kalkofnsvegi 1, 150 Reykjavík. Nánari upplýsingar eru veittar í símum 569 9628 og 569 9781 eða á netfanginu:thjodhatidarsjodur@sedlabanki.is . Stjórn Þjóðhátíðarsjóðs