Teiknisamkeppni / Meðal vinningshafa er nemandi í Grunnskólanum í Reykholti
Fréttir
15.04.2009
Níundi Alþjóðlegi skólamjólkurdagurinn
Úrslit í teiknisamkeppni barna í 4. bekk grunnskólanna
Menntamálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, tilkynnti fyrir skömmu úrslit í teiknisamkeppni Alþjóðalega skólamjólkurdagsins, sem haldinn er hátíðlegur síðasta miðvikudag í september ár hvert. Eins og undanfarin ár barst mikill fjöldi teikninga í samkeppnina, sem Markaðsnefnd mjólkuriðnaðarins stendur að hér á landi. Að sögn Guðnýjar Steinsdóttur, markaðsstjóra MS, bárust tæplega 900 teikningar frá 54 skólum alls staðar að af landinu. Tíu nemendum eru veittar viðurkenningar fyrir teikningar sínar að loknu vali á úrtaki mynda sem lagt er fyrir menntamálaráðherra, sem jafnframt er formaður dómnefndar. Meðal vinningshafa í ár er Embla Líf Trepte Elsudóttir í Grunnskóla Bláskógabyggðar í Reykholti.
Markmið keppninnar er að vekja athygli á mikilvægu hlutverki mjólkur í daglegu mataræði barna. Neysla mjólkur hefur aukist í grunnskólum á undanförnum árum, sem m.a. má rekja til mjólkurkælivéla sem víða hafa verið settar upp í skólunum. Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra tilkynnti í menntamálaráðuneytinu þriðjudaginn 7. apríl hvaða tíu teiknarar hlytu verðlaun í samkeppninni að þessu sinni.
Alþjóðlegi skólamjólkurdagurinn er haldinn að undirlagi Matvælastofnunar Sameinuðu þjóðanna, FAO. Að því tilefni, sem fyrr segir, fer árlega fram hér á landi teiknisamkeppni meðal nemanda í fjórða bekk í grunnskólum landsins. Eru verðlaunateikningarnar notaðar á veggspjöld og annað kynningarefni vegna Skólamjólkurdagsins sem fram fer næst í september.
Vinningshafarnir 2009
Harpa Mjöll Þórsdóttir í Húsaskóla, Ingibjörg Elísa Jónatansdóttir í Öldutúnsskóla í Hafnarfirði, Lára Sif Davíðsdóttir í Sjálandsskóla Hafnarfirði, Embla Líf Trepte Elsudóttir í Grunnskóla Bláskógabyggðar í Reykholti, Elmar Blær Arnarson í Hrafnagilsskóla í Eyjafjarðarsveit, Kristín María Vilhjálmsdóttir í Fellaskóla í Reykjavík, Þórhallur Tryggvason í Ísaksskóla í Reykjavík, Sveinbjörg D. Steinþórsdóttir í Fellaskóla í Reykjavík, Hafþór Ingólfsson í Nesskóla á Neskaupstað, og Valgerður Pétursdóttir í Síðuskóla á Akureyri.
Til sýnis á vefnum
Hver verðlaunahafanna fær 25 þúsund krónur, sem renna óskiptar í bekkjarsjóð viðkomandi. Vinningsteikningarnar verða senn aðgengilegar á vefslóðinni www.ms.is.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um verðlaunin og Alþjóðalegan skólamjólkurdag FAO veitir Guðný Steinsdóttir, markaðsstjóri MS, í síma 860 2282.
Fréttatilkynning frá Mjólkursamsölunni 15. apríl 2009.
Myndatexti:
F.v. Guðný Steinsdóttir, markaðsstjóri MS, Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra og Björn S. Gunnarsson frá Markaðsnefnd mjólkuriðnaðarins við myndavalið.