Tafir vegna fjárrekstra í Biskupstungum

Fréttir 09.09.2022
Föstudaginn 9. september og laugardaginn 10. september má búast við umferðartöfum á eftirtöldum vegum í Biskupstungum vegna fjárrekstra. Föstudaginn 9. sept Biskupstungnabraut F35, milli Gullfoss og Geysis frá kl: 11:30 til 13:30. Skeiða- og Hrunamannavegur F30, við Gýgjarhól milli kl: 14:00 og 15:30. Einholtsvegur F358, frá Kjarnholtum að Tungnaréttum frá kl:16:00 fram á  kvöld. Laugardaginn 10. sept Biskupstungnabraut F35 frá Vatnsleysu að Múla frá kl:13:00 og fram eftir degi. Einholtsvegur F358 frá Tungnaréttum að Gýgjarhólskoti frá kl:13:00 og fram eftir degi.   Fjallskilanefnd Biskupstungna