Tafir vegna fjárrekstra í Biskupstungum

Fréttir 03.09.2021
Föstudaginn 10. september og laugardaginn 11. september má búast við umferðartöfum á eftirtöldum vegum í Biskupstungum vegna fjárrekstra. Föstudaginn 10. sept Biskupstungnabraut F35, milli Gullfoss og Geysis frá kl: 11:30 til 13:30. Skeiða- og Hrunamannavegur F30, við Gýgjarhól milli kl: 14:00 og 15:30. Einholtsvegur F358, frá Kjarnholtum að Tungnaréttum frá kl:16:00 fram á  kvöld. Laugardaginn 11. sept Biskupstungnabraut F35 frá Vatnsleysu að Múla frá kl:13:00 og fram eftir degi. Einholtsvegur F358 frá Tungnaréttum að Gýgjarhólskoti frá kl:13:00 og fram eftir degi.   Fjallskilanefnd Biskupstungna.  

Fjárréttir í Bláskógabyggð

     Tungnaréttir í Biskupstungum verða laugardaginn 11. september kl. 9.00 Laugarvatnsrétt verður sunnudaginn 12. september ca kl. 15.00 Heiðarbæjarrétt Þingvallasveit verður laugardaginn 18. september kl. 15.00 Brúsastaðarétt í Þingvallasveit verður sunnudaginn 19. september kl. 17.00