Tafir vegna fjárrekstra í Biskupstungum.
Fréttir
24.08.2018
Föstudaginn 7. september og laugardaginn 8. september má búast við umferðartöfum á eftirtöldum vegum í Biskupstungum vegna fjárrekstra.
Föstudaginn 7 .sept
Biskupstungnabraut F35 , milli Gullfoss og Geysis frá kl: 11:30 til 13:30.
Skeiða- og Hrunamannavegur F30 við Gýgjarhól milli kl.: 14:00 og 15:30.
Einholtsvegur F358 frá Kjarnholtum að Tungnaréttum frá kl:16:00 fram á kvöld.
Laugardaginn 8. sept
Biskupstungnabraut F35 frá Vatnsleysu að Múla frá kl:13:00 og fram eftir degi.
Einholtsvegur F358 frá Tungnaréttum að Gýgjarhólskoti frá kl:13:00 og fram eftir degi.
Fjallskilanefnd Biskupstungna.