Tafir vegna fjárrekstra í Biskupstungum.

Fréttir 28.08.2017
Föstudaginn 8. september og laugardaginn 9. september má búast við umferðartöfum á eftirtöldum vegum í Biskupstungum vegna fjárrekstra. Föstudaginn 8 .september 2017: Biskupstungnabraut F35 , milli Gullfoss og Geysis frá kl. 11:30 til 13:30. Skeiða- og Hrunamannavegur F30 við Gýgjarhól milli kl. 14:00 og 15:30. Einholtsvegur F358 frá Kjarnholtum að Tungnaréttum frá kl. 16:00 fram á kvöld. Laugardaginn 9. september 2017: Biskupstungnabraut F35 frá Vatnsleysu að Múla frá kl. 13:00 og fram eftir degi. Einholtsvegur F358 frá Tungnaréttum að Gýgjarhólskoti frá kl. 13:00 og fram eftir degi.   Fjallskilanefnd Biskupstungna.