Tafir vegna fjárrekstra í Biskupstungum.

Fréttir 30.08.2016
Föstudaginn 9. sept og laugardaginn 10. sept má búast við umferðartöfum á eftirtöldum vegum í Biskupstungum vegna fjárrekstra. Föstudaginn 9 .sept Biskupstungnabraut (vegur 35) , milli Gullfoss og Geysis  frá kl: 11:30 til 13:30. Skeiða- og Hrunamannavegur (vegur 30)  við Gýgjarhól milli kl.: 14:00 og 15:30. Einholtsvegur (vegur 358) frá Kjarnholtum að Tungnaréttum frá kl:16:00 fram á kvöld. Laugardaginn 10. sept Biskupstungnabraut (vegur 35) frá Vatnsleysu að Múla frá kl:13:00 og fram eftir degi. Einholtsvegur (vegur 358) frá Tungnaréttum að Gýgjarhólskoti frá kl:13:00 og fram eftir degi.   Fjallskilanefnd Biskupstungna