Sviðsstjóri þjónustu- og framkvæmdasviðs
Fréttir
03.06.2011
Bláskógabyggð leitar að að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi í starf sviðsstjóra þjónustu- og framkvæmdasviðs. Sviðsstjóri ber ábyrgð gagnvart
sveitastjóra í öllum störfum sínum og ákvörðunum.
Starfssvið
? Umsjón með rekstri þjónustumiðstöðvar, Félagsheimilinu Aratungu,
Íþróttamiðstöðvarinnar í Reykholti, Eignasjóði, Fráveitu og Leiguíbúðum
? Starfsmannahald
? Gerð fjárhagsáætlana í samvinnu við sviðsstjóra stjórnsýslusviðs og sveitarstjóra
? Umsjón með viðhaldi mannvirkja og eigna sveitarfélagsins
? Umsjón með lóðum og lendum sveitarfélagsins
? Ábyrgð og eftirlit með öryggismálum
? Umsjón með sorphirðu sveitarfélagsins
Menntunar- og hæfniskröfur
? Rekstrar-, verk- eða tæknifræðimenntun sem nýtist í starfi
? Þekking og reynsla af stjórnun og rekstri
? Reynsla af áætlanagerð, s.s. verk-, kostnaðar- og fjárhagsáætlanagerð
? Framúrskarandi leiðtogahæfni og hæfni í mannlegum samskiptum
? Þekking á sviði framkvæmda er æskileg
? Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er æskileg
? Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og skipulagshæfni
Bláskógabyggð varð sveitarfélag 9. júní 2002 en þá sameinuðust Biskupstungnahreppur,
Laugardalshreppur og Þingvallahreppur. Íbúar eru alls 939. Bláskógabyggð er mjög
landstórt og víðfemt sveitarfélag. Öflugt félagslíf er í sveitarfélaginu. Hefð er fyrir
miklu skólasamfélagi á Laugarvatni, en þar eru öll skólastig; leikskóli, grunnskóli,
menntaskóli og háskóli. Ferðaþjónusta er mjög stór atvinnugrein í Bláskógabyggð og
matvælaframleiðsla mikil. Menning er á háu stigi um allt sveitarfélagið og það skartar
fjölförnustu ferðamannastöðum landsins; Þingvöllum, Laugarvatni, Geysi, Gullfossi og
Skálholti. Sjá nánar á heimasíðunni: www.blaskogabyggd.is
Hvetjum jafnt konur sem karla til að sækja um starfið.
Umsjón með ráðningu hafa Helga Jónsdóttir (helga.jonsdottir@capacent.is) og Tómas Oddur Hrafnsson (tomas.hrafnsson@capacent.is) hjá Capacent Ráðningum. Umsóknarfrestur er til og
með 19. júní nk. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Capacent Ráðninga, www.capacent.is. Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.