Sveitarstjórnarkosningar í Bláskógabyggð 29. maí 2010

Fréttir 26.04.2010
Frestur til að leggja fram framboðslista fyrir sveitarstjórnarkosningar í Bláskógabyggð 29. maí 2010. Frestur til að leggja fram framboðslista fyrir sveitarstjórnarkosningar í Bláskógabyggð rennur út kl. 12:00 á hádegi laugardaginn 8. maí 2010.  Þann dag tekur yfirkjörstjórn á móti framboðslistum milli kl. 11:00 ? 12:00 á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa Uppsveita Árnessýslu og Flóahrepps, Dalbraut 12, Laugarvatni. Hverjum framboðslista ber að fylgja skrifleg yfirlýsing allra þeirra sem á listanum eru og auk þess listi yfir meðmælendur að lágmarki 20 og hámarki 40.  Vísað er til laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998.  Jafnframt er bent á heimasíðunahttp://www.kosning.is/  þar sem hægt er að finna leiðbeiningar og eyðublöð fyrir þá sem hyggjast bjóða fram lista. Yfirkjörstjórn Bláskógabyggðar Pétur Skarphéðinsson, Launrétt 3,Laugarási Hilmar Einarsson, Torfholti 12, Laugarvatni Þóra Einarsdóttir, Kárastöðum, Þingvallasveit