Sveitarstjórnarkosningar, 14. maí 2022.

Fréttir 03.05.2022
Kjörstaðir í Bláskógabyggð vegna sveitarstjórnarkosninga  14. maí 2022 eru tveir:   Húsnæði Aratungu, Reykholti, fyrir íbúa í Biskupstungum. Húsnæði Bláskógaskóla Laugarvatni, Lindarbraut 6, fyrir íbúa í Laugardal og Þingvallasveit.   Kjörfundur hefst í báðum kjördeildum kl. 10:00 og lýkur kl. 22:00.   Kjósendur skulu hafa meðferðis persónuskilríki og framvísi þeim ef óskað er. Einstaklingar búsettir erlendis, sem hafa kosningarétt í Bláskógabyggð og eru á kjörskrá í kjördeild I, Reykholti.   Kjörskrá liggur frammi á skrifstofu Bláskógabyggðar í Aratungu frá og með 23. apríl 2022 fram til kl. 12:30 13. maí 2022  

Talning hefst í Aratungu svo fljótt sem auðið er að loknum frágangi á kjörfundi sem lýkur kl 22:00.

Yfirkjörstjórn Bláskógabyggðar

  Bent er á upplýsingavef  http://www.kosning.is en þar er að finna hagnýtar upplýsingar um framkvæmd kosninganna.  Þar geta kjósendur einnig kannað hvar þeir eru á kjörskrá á vefslóðinni  https://www.skra.is/thjonusta/einstaklingar/kjorskra-og-kosningarettur/